Tilvistarkreppan..
Ég er alveg komin með mikið meira en nóg af þessari tilvistarkreppu sem hefur verið ríkjandi öðru hverju í lífi mínu síðustu þrjú árin. Og þessa dagana er hún á alveg blússandi háu stigi. Hvernig getur maður verið svona hrikalega lost í lífinu?? Ég hef bara ekki hugmynd um hvað ég eigi að gera.. á ég að vera skynsöm til tilbreytingar og drattast í skóla og "verða" eitthvað? eða á ég að finna mér almennilega vinnu, safna pening og fara aftur út á meðan maður hefur ennþá ekkert sem heldur manni á klakanum? Humm...er nú búin að basla svo lengi við þessa spurningu.. Hef meira að segja prófað báða möguleikana, þannig að maður myndi nú halda að þetta ætti ekki að vera svona hrikalega mikið mál..
en í skemmtilegri sálma..
Við Beta tókum á áramótaheitunum í síðustu viku, fórum að hreyfa okkur (bara vegna þess að við fáum borgað fyrir það að vísu) og gerðumst líka menningarlegar og fórum á Aftan Festival tónleikana í Sandgerði á fim. Held að þetta sé fyrsta árið sem ég hef haldið áramótaheitin mín alveg fram í febrúar! Alveg magnað.
Guð, það er svo lítið að gerast í lífi mínu að ég hef ekkert að segja... Búin að vera á náttfötunum frá klukkan hálftvö í dag og ætli það sé bara ekki kominn tími til að fara þá bara í háttinn:)
